• Viska ljóssins
  • Tákn
  • Fróðleikur
    • Bækur
    • Dáleiðsla
    • Draumar
    • Heilun
    • Hugleiðsla
    • Tarot
  • Um mig
Menu
  • Viska ljóssins
  • Tákn
  • Fróðleikur
    • Bækur
    • Dáleiðsla
    • Draumar
    • Heilun
    • Hugleiðsla
    • Tarot
  • Um mig

Dýr

AFtur í flokka
Api

styrkur, tryggð, frjósemi, viska (bavíanar), í kristnum menningarsvæðum táknar hann lesti manna, illgirni og heimsku, sjálfselsku

Asni

Táknar viljastyrk, staðfestu, ákveðni og vinnusemi.

Að sjá asna í draumi eða hugleiðslu segir þér að klára það sem þú hefur núþegar byrjað á. Ef þú átt þér drauma og þrár máttu ekki gefast upp á þeim, jafnvel þegar á móti blæs.

Andleg merking asna kennir þér að segja nei – sérstaklega í aðstæðum þar þú ert beðin/n um að gera eitthvað gengur þvert á þínar persónulegar skoðanir þínar og trú.

Asni getur líka staðið fyrir heimsku, þrjósku og leti.

Æðarfugl

hlýja og öryggi

Björn

Tími kominn til að draga sig í hlé og leita svara innan frá.

Tákn fyrir hugrekki, kraft, styrkleika, sjálfstraust, heilun og jarðteningu. Í kristinni táknfræði táknar björninn grimmd, eyðileggingu og áhrif hins illa.

Býfluga (hunangsfluga)

Farðu yfir markmiðin þín og skipuleggðu þig. Táknar dugnað, þjónustulund, góðmennsku og stendur fyrir samfélag.

Dádýr (hjartardýr)

Dádýr stendur fyrir mikla næmni og sterkt innsæi. Það er bjargvættur sem vísar leiðina og maður eltir. Dádýrið minnir mann á að takast á við lífið og tilveruna af virðingu. Táknar hógværð, sakleysi, frjósemi, lífskraft og endurfæðingu. Í Kína táknar hjartardýr táknar auð og völd.

Drekafluga

Stendur fyrir hreinleika, góðvild, lukku og jafnvægi. Táknar heilagleika og andleg breytingu.

Dúfa

friðartákn, guðlegur sendiboði, hreinleiki og skírlífi

Eðla

Táknar endurnýjun og aðlögun.

Það er kominn tími til að fara í innri endurskoðun. Veltu fyrir þér hvort egóið eða hjartað ráði för. Egóið er meistari blekkingarinnar og þú verður oft að afhýða mörg lög til að komast að sannleikanum. Eina leiðin til að uppgötva það sem er rétt fyrir þig er það sem hjarta þitt segir þér. Gefðu þér því tíma til að einbeita þér að draumum þínum en leyfðu krafti egósins að leiða þig þangað.

Elgur

Stendur fyrir árangur, visku, göfgi og að þora að láta á sér bera.

Teygðu höfuð þitt og huga til stjarnanna, en haltu fótunum á jörðinni. Hlustaðu á forna visku sálar þinnar og leiðbeinenda. Trúðu því að öflug öfl leiðbeini þér. Geta þín til að sigrast á áskorunum er takmarkalaus. Fagnaðu afrekum þínum með auðmýkt.

Engispretta

Gefur til kynna að þú eigir að hlusta á þína innri rödd, þora að bregðast við löngunum þínum og stökkva af stað.

Engispretta stendur oft fyrir eyðileggingu og hnignun en getur líka staðið fyrir velmegun og heppni.

Fálki

Þú munt fljótt ná takmarki þínu. Stendur fyrir einbeitingu, skýra sýn, nýtt sjónarhorn og er boðberi ljóssins.

Fasani

táknar ljós, vernd og velmegun

Fiðrildi

Stendur fyrir umbreytingu, ódauðleika, frelsi, fegurð og gleði.

Samkvæmd japönskum goðsögnum voru fiðrildi talin vera sálir hinna lifandi.

Í forn-grísku var orðið psyche notað yfir fiðrildi, en merking þess orðs er andardráttur lífsins. Af þessari rót eru orðin psychiatric (geðræn), psyche (sálarlíf) og psychology (sálfræði) dregin. Í grískri goðafræði var Psyche gyðja sálarinnar og kona Erosar sem var guð ástarinnar.

Fíll

hlúðu fyrst að þér áður en þú hjálpar öðrum, góðlyndi, kraftur, tryggð, minni og viska, auður, velsæld, langlífi, sigur

Fiskur

Táknar frjósemi og kærleika.

Elsta leynitákn eða felumerki þeirra sem játuðust kristna trú. Þeir sem rissuðu fisk í sand gáfu þannig merki til annarra sem skyldu að viðkomandi var kristin. Á grísku er fiskur ichþys = I (iesous), ch (Christos), þ (þeou), y (hyios), s (soter) = Jesús Kristur guðs-sonur freslari.

Flamingófugl

Stendur fyrir fegurð, glæsileika og jafnvægi.

Flóðhestur

afl, hreysti

Fluga

synd, illska, sjúkdómar og pestir

Froskur

gríptu tækifærið, sköpun, andagift, frjósemi, gæfa, í kristinni táknfræði tákna froskar undirferli, synd og synd en einnig líf og upprisu.

Fugl

frelsi, táknar líka sálina og andann (fugl í búri = ófrelsi), himininn, lífsgleði, hugarflug, draumar og þrár

Gæs

sólin, góðar fréttir, móðurleg umhyggja, árvekni, trygglyndi

Geit

Geit táknar gnægð, frjósemi, eigin velgengni, frjálsan anda og seiglu. Geit sem kemur fram í draumi gæti verið vísbending um góðan tíma í lífi þínu.

Geit táknar hugarfar festu og ákveðni, sá sem einblínir á markmið sín og forystu frekar en að fylgja hjörðinni. Athyglisvert er að í ritningunni er geitin ekki sýnd í eins jákvæðu ljósi og sauðféð. Kannski er þetta vegna þess að fólk sem birtir eiginleika geitarinnar er oft móðgandi og tillitslaust í garð annarra. Þeir sem vilja vera í forystu og hafa frumkvæði geta fallið í þá gryfju að ofmeta eigið ágæti og verða hrokafullir.

Gíraffi

leyfðu forsjánni að leiða þig áfram

Górilla

berðu þig vel 

Gullfiskur

Táknar velgengni í starfi og heppni í lífinu.

Háhyrningur

Stendur fyrir félagslyndi og að þora að láta á sér bera. Getur einnig táknað andlega leiðsögn og að vera tilbúin/n til að takast á við tilfinningar sínar.

Hákarl

næg tækifæri en þú verður að sækjast eftir þeim

Hani

vernd, varúð, árvekni, karlmennska, hugrekki

Hæna

móðurlegumhyggja, þolinmæði, vernandi kærleikur

Hegri

trúfesti, tyrggð, góðvild og reglusemi

Héri

Sá sem hlustar, heyrir, 

Hestur

styrkur, hraði, kraftur, þróttur 

Hlébarði

grimmd, synd, tákn djöfulsins í kristinni táknfræði,

Höfrungur

leiktu þér með vinum, bjargvættur, eilíft líf, tákn Krists sem bjargar frá syndum og dauða

Höggormur

tákn djöfulsins og hins illa,

Hrafn

Stendur fyrir miðlun, skilaboð, spádóma og styrk. Getur táknað feigðarboða eða að einhverjum sé ekki treystandi.

Hreindýr

treystu innsæinu, þú ert á réttri leið, ekki láta drama annarra villa þér sýn

Hrútur

kraftur, þróttur og stefnufesta

Hundur

Merkir tryggð, trú og vernd (sá sem víkur aldrei frá manni), spádómsdýr. Stendur fyrir kærleika, skilyrðislausa ást og kátínu.

Birtingarmynd Guðs (ef orðið dog er lesið afturábak má lesa orðið God).

Hvalur

Merkir að hlusta á innri rödd sína, fylgja innsæinu og hjartanu.

Stendur fyrir samskipti, friðsamlegan styrk og visku.

Minnir mann á mikilvægi fjölskyldu og samfélags.



Hýena

Stendur fyrir opna heiðarlega tjáningu, en minnir mann á að velja orðin vel. Að dreyma hýenu eða sjá hana í hugleiðslu merkir að þú þurfir að setja fjölskyldu þína í fyrsta sæti.

Íkorni

passa upp á að allt sé í lagi svo framtíðin verði góð, muna að leika sér líka

Ísbjörn

að lifa af

Jagúar

Stendur fyrir heilun gamalla sára, endurfæðingu eftir erfiðleika, lífskraft og andlegan þrótt.

Táknar vald, frjósemi, hreysti, hugrekki, hollustu, styrk og fegurð.


Kalkúni

Stendur fyrir gnægð, örlæti, að eiga nóg og ánægju.


Kamelljón

nýir andlegir hæfileikar, aðlögunarhæfni

Kanarífugl

frelsi, gleði

Kanína

frjósemi, dugleg að bjarga sér

Kind

Táknar þörfina fyrir öruggri fótfestu og að tilheyra hópnum, eiga góð fjölskyldu- og vinatengsl. Merkir sakleysi, hreinleika, frið, samkennd, þrautseigju, hugrekki og að kunna að setja sér mörk.

Í Biblíunni vísar sauðfé á táknrænan hátt til þeirra sem trúa á Guð.

Kóalabjörn

hvetur mann til að fara varlega í næstu skref, ekki flýta sér og muna að vera og njóta. Þú ættir að tengjast innsæinu betur.   

Kólibrífugl

Stendur fyrir léttleika tilverunnar og ánægju lífsins.
Táknar sjálfstæði, seiglu og að geta brugðist hratt við. Einnig jákvæðni, glettni og gleði.

Hann minnir þig á að vera meira til staðar.

Kolkrabbi

stundum þarf að þykjast vera annar en maður er til að ná marki sínu, þú getur náð markmiði þínu

Könguló

Köngulóin er sístarfandi. Hvar liggur sköpunarkraftur þinn? Táknar lævísi, svik, syndsamlegar athafnir, krosskönguló nýtur blessunar Guðs, táknar lukku

Köttur

Stendur fyrir þolinmæði, næmni, kvenorku, hugrekki, sjálfstæði en samt að njóta félagslegra tengsla. Táknar ævintýraþrá, forvitni og að bíða eftir rétta tækifærinu til að bregðast við.
Merkir djúpa, afslappaða tengingu við sálina og að leita bata/lækningar innan frá og út.

Krabbi

leiðin að markinu er ekki alltaf bein, stundum þarf að taka hliðar skref, skel krabbans táknar líkamann – veraldlegan búning, vörn til að hleypa ekki öllum nálægt sér

Kráka

Stendur fyrir örlög, leyndardóma og lífstöfra.
Merkir persónulega umbreytingu, greind, að vera óttalaus, sveigjanlegur og með mikla aðlögunarhæfni.

Treystu innsæi þínu og visku.



Krókódíll

Krókódíll stendur fyrir sálarvitund og að vera óttalaus en getur líka staðið fyrir varúð og breytingar.

Krossfiskur

Stendur fyrir fegurð, tilfinningar og samkennd.

Krossfiskurinn minnir þig á að treysta innsæi þínu og finna jafnvægi.


Kýr

móðurlegir, nærandi kraftar, seigla, hlýja, þolinmæði

Kyrkislanga

Einhver sem er nærri þér er undirförull og falskur.

Lamb

hið saklausa og hreina, vor og frjósemi

Lax

frægð og ríkidæmi

Leðurblaka

taktu eftir breytingum hjá þér, eitthvað er að fæðast um leið og annað fer, boðberi hins illa, tákn dauðans en í Kína tákna þær langlífi og hamingju, 5 leðurblökur = langlífi, auður, góð heilsa, dyggðug ást, náttúrlegur dauði

Lirfa

Umbreyting

Ljón

Styrkur, vald, hið villta, sólina getur táknað Krist og upprisuna; ósigrandi konungur dýra líkt og Kristur er ósigrandi konungur manna.

Lús

Tákna illt umtal

Marglytta

að þora að láta ljós sitt skína

Maríuhæna

Merkir heppni, sakleysi, sanna ást og léttleika.
Maríuhæna stendur fyrir góða heilsu, hamingju og mikilvægi þess að þekkja sjálfan sig til að velja rétt í lífinu.

Maur

iðn, dugnaður, regla og samvinna

Mús

taktu eftir því sem er beint fyrir framan þig og stökktu af stað

Mykjubjalla (Scarab)

Táknar vernd, hringrás, ódauðleika, upprisu, umbreytingu og endurfæðingu.

Forn-Egyptar töldu bjölluna heilaga því hegðun hennar þótti hliðstæð hlutverki sólarguðsins Ra þegar hann sýndi sig sem Khepri. Khepri var Guð sköpunar og endurfæðingar og stjórnaði hreyfingu sólarinnar. Líkt og sólarguðinn ýtti sólinni inn í sjóndeildarhringinn veltir bjallan moldarkúlu á undan sér en í henni geymir bjallan eggin sín.

Scarab bjallan var meðal allra vinsælustu tákna á fornu-egypskum skartgripum.

Naut

lífskraftur, þróttur, ofsi, ruddaskapur og ótti, frjósemi, dauði og óhamin náttúruöfl

Önd

tákna gott hjónaband (mandarinendur), taldar heilagar í Gallíu

Órangútan

taktu eftir teiknum í kringum þig, þau eru alls staðar

Ormur

frjósemistákn

Örn

Stendur fyrir víðsýni, ofsafenginn kraft, hugrekki, sjálfstraust, styrk, stöðugleika, þrautseigju, innsæi, von og heilun. Örninn er með yfirsýn, flýgur fugla hæst, er konungur fuglanna.

Táknar ljósið sem sigrast á myrkum öflum, tákn guðspjallamannsins Jóhannesar og takn hins upprisna Krists

Páfagaukur

vera vakandi, gæta orða sinna, aðvörun, véfrétt

Páfugl

Stendur fyrir tign, að þora að sýna sig og að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur. Táknar upprisu, ódauðleika, eilíft líf, sólina, himinhvolfið, stjörnur, fegurð, dýrð, stolt en einnig hroka og hégómleika.

Páfuglsfjaðrir eru taldar veita lukku.

Rómverjar töldu páfuglinn vera heilagan fugl.

Pelikani

táknar Krist

Refur

Stendur fyrir góða dómgreind, ábyrgð, lipurð, útsjónasemi og að hugsa fram í tímann. Refur getur líka táknað slægð því hann er ekki sá sem hann sýnist vera.

Rjúpa
Rotta

Hafa oftast neikvæða merkingu því þær eru smitberar og spilla mat og húsnæði. Tákna óþægindi, mögulega vegna einhvers sem ekki er hægt að treysta.

Geta táknað nýja byrjun eða breytingar. Í Búddatrú hefur rotta sérstaka virðingu því hún er fyrsta dýrið sem kvaddi Búdda þegar hann lá fyrir dauðanum. 

Sæhestur

að vera þrautseigur og vinna að markmiðum sínum

Selur

taktu eftir ímyndum þínum og innsæi, 

Skjaldbaka

taktu þinn tíma, tákna ódauðleika og styrk

Slanga – snákur

umbreyting á sér stað, frjósemi, endurfæðing (ef hún bítur í hala sinn), eitt elsta goðsagnakennda tákn mannkyns, lækningatákn

Snigill

hægðu á þér

Söngtifa

Táknar upprisu, ódauðleika, andlega framkvæmd og andlega alsælu.

Sporðdreki

ógæfa, illgirni, dauði, tákn djöfulsins, ólgandi tilfinningar og frjótt ímyndunarafl

Steingeit

táknar vinnusemi, ákveðni, ábyrgð og áræðni

Storkur

táknar barnsfæðingu, endurfæðingu og frjósemi, langlífi

Strútur

Stendur fyrir andlegan sannleika, réttlæti og að setja skýr mörk.

Strútur getur einnig táknað afneitun, ótta og tilfinningar sem ekki hefur verið unnið með.

Leyfðu þér að standa upprétt/ur og vera áberandi, hættu að fela þig.

Svala
Svanur

tign, glæsileiki, umbreyting, hreinleiki

Svart pardusdýr

Táknar endurfæðingu og næmni fyrir hinum andlega heimi.

Stendur fyrir kraft, sókn, kvenorkuna, verndarorku og hæfileikann til að þekkja myrkrið.

Þeir sem skynja svart pardusdýr í hugleiðslum eða draumum hafa skilning á dauðanum.

Minnir mann á að endurheimta vald sitt.

Svín

frjósemi, velmegun

Tígrisdýr

vertu þolinmóð/ur og notaðu reynsluna, afl, ofsi, vernandi tákn gegn hinu illa

Flýtileiðir
  • Viska ljóssins
  • Tákn

© Hrafnhildur Sigurðardóttir